námsefni í gervigreindarlæsi fyrir framhaldsskóla · íslenska
þú skrifar fyrst.vélin fær orðið á eftir.
- hvað
- 21 einingar í fjórum hæfnilínum
- fyrir hvern
- framhaldsskólanema og kennara þeirra
- hversu langt
- um 20 mín á einingu · 6 verkefnapakkar
námskráin · 21 einingar í fjórum hæfnilínum
undirlagsdómgreind
stefnufesta
samvinnuathöfn
jaðarlæsi
úr einingu 21 · tölvuleikir · mannlega akkerið
„Veldu tölvuleik sem þú þekkir vel. Skrifaðu um flæði, félagsskap, erfiðleikastig, pirring, sigurtilfinningu, ósanngirni og hvað fær þig til að koma aftur.“
Byrjaðu hér
Veldu eina sem kveikir í þér. Um 20 mínútur.
Splunkunýr í tölvunni? Byrjaðu hér.
Náðu fyrst tökum á grunnhandtökunum, að afrita, líma, senda mynd, taka skjámynd, í Handtökunum: litlum og rólegum æfingaleik án aðgangs og án þess að geta gert mistök. Svo verður Tækniseiglan leikur einn.
Hvernig þetta hangir saman
Fjórir hlutar, ein leið. Þú mátt byrja hvar sem er, en þetta er þráðurinn.
- GrunnlögSkildu aðferðina og hvers vegna hún virkar.
- EiningVeldu áhugasvið og vinndu þriggja skrefa hryggjargrindina.
- ÆfingGagnrýndu úttak vélarinnar og gerðu Ábyrgðarskjal.
- VerkbókSafnaðu verkinu þínu, ummerkjum og ábyrgð, á einn stað.
Langar þig að vita hvað þú getur gert með tækninni? Sjá Kokkabókina →
Þriggja skrefa aðferðin
Mannlega akkerið
Nemandinn skrifar um efnið út frá eigin reynslu, án gervigreindar. Þar með er komið viðmið sem vélrænt úttak má ekki gleypa.
Vélræna uppbrotið
Nemandinn beitir skipulagðri kvaðningu (e. prompt) til að leiða gervigreindina í kerfisbundna greiningu sem væri seinleg í höndunum.
Ábyrgðarskjalið
Nemandinn sannprófar úttakið, finnur villur, skráir heimildir, hafnar því sem stenst ekki og tekur persónulega ábyrgð á niðurstöðunni.
Fyrir kennara og nemendur
Kennarar fá fyrirsjáanlega einingu sem má nota aftur, með kennaraleiðbeiningum og matsviðmiðum. Sá sem hefur kennt eina einingu veit strax hvernig sú næsta er byggð.
Nemendur æfa dómgreind, ekki að skila glansandi lokaafurð. Skilin sýna hvernig unnið var, hvar vélin brást og hvaða ábyrgð manneskjan tók til baka.
Af hverju iðkun
Öll verkefnin hér krefjast iðkunar, sama hvort þig langar að glíma við eðlisfræðilegt eða stærðfræðilegt vandamál, ljóð eða sveiflu. Færnin kemur ekki úr lokaafurðinni, hún kemur úr því að gera hlutinn sjálf/ur, aftur og aftur.
Að ætla að láta „Chattið“ redda þessu fyrir þig er svona álíka gáfulegt og að mæta á línuskautum á hlaupabretti, standa á því og halda að þú komist í gott form. Vélin getur hreyft brettið, en fæturnir eru þínir.
Framtíðin mun kalla hátt eftir magnanlegu fólki, því sem hefur þjálfað ímyndunarafl sitt og sköpunarkraft til að virkja vélarnar. Stór mállíkön eru fötur, ekki kassar: hver kynslóð þarf að bæta í þær. Iðkun er leiðin til að verða sá sem magnar vélina, í stað þess að vera leyst/ur af henni.
Hlaðvarpið: stór mállíkön eru fötur, ekki kassar → (opnast í nýjum flipa)