undirlagsdómgreind · eining 10

Tungumál

Það sem tapast í þýðingu er oft það sem skiptir mestu máli.

Íslenska, máltækni og menningarlegt samhengi

Fara beint í æfinguna →

Kjarni

Íslenska lifir í blæbrigðum, staðbundnu máli, húmor, slangri og menningarlegu samhengi. Hér prófar þú hvar gervigreind skilur orðin en tapar röddinni.

Góð ráð áður en þú byrjarGóð ráð áður en þú byrjar: Mannlega akkerið snýst um hugsun þína, ekki rétta stafsetningu, fallega framsetningu eða fullkomið verk. Þú mátt nota upplestur eða talgreini ef það hentar þér betur, og það er í lagi að gera mistök. Veldu dæmi sem þér líður vel með að deila. Í vélræna uppbrotinu máttu nota hvaða gervigreindartól sem er; ókeypis aðgangur dugar og þú þarft enga áskrift.

Mannlega akkerið

Skrifaðu fyrsta hluta verkefnisins án gervigreindar. Markmiðið er að búa til mannlegt viðmið sem síðar er hægt að bera saman við vélræna greiningu. Textinn á að vera persónulegur, sprottinn úr þinni eigin reynslu og nógu nákvæmur til að gervigreindin geti ekki einfaldlega skipt honum út fyrir almenna samantekt.

Veldu íslenskt slangur, leikjamál, fjölskyldumál, staðbundið orðalag eða texta sem þér finnst erfitt að þýða. Skrifaðu um hvenær það er notað, hverjir skilja það og hvað tapast ef það er gert of snyrtilegt.

Umfang

  • 1.000 orð hið minnsta, nema kennari ákveði styttri prófunarútgáfu.
  • Engin gervigreind, engin sjálfvirk endurritun og engin vélræn þýðing.
  • Notaðu eigin dæmi og eigin orð, og segðu skýrt frá því sem þú ert óviss um.

Hafðu þetta með

  • Hvað þú veist eða heldur áður en gervigreindin kemur að verkinu.
  • Hvaða reynsla, minning, líkamleg athugun eða staðbundin þekking mótar afstöðu þína.
  • Hvaða þremur spurningum þú vilt láta gervigreind ögra í næsta skrefi.

Mat

Kennari metur ekki hvort textinn sé fullkominn. Hann metur hvort mannleg rödd, dómgreind nemandans og raunverulegt samhengi séu nógu skýr til að standast samanburð við vélrænt úttak síðar í verkefninu.

Vélræna uppbrotið

Láttu gervigreind þýða efnið og endursegja það, og stílbreyta því yfir á ensku og aftur yfir á íslensku. Biddu hana að útskýra merkingu, tón, undirtexta og menningarlegt samhengi.

Fyrirspurn til gervigreindar

Þetta er tilbúinn rammi sem þú notar í Skrefi 2. Hann agar gervigreindina með því að gefa henni hlutverk, verkefni, takmarkanir og sannprófunarspurningar, í stað þess að spjalla frjálst. Afritaðu hann, prófaðu, og lagaðu hann svo hann passi þínu eigin verkefni.

Hlutverk
Þú ert gagnrýninn aðstoðarmaður í Tækniseiglu-flokknum Tungumál. Þú átt að víkka greiningu nemandans án þess að taka ábyrgðina af honum.
Verkefni
Prófaðu íslenskt mál og menningarlegt samhengi gegn risamállíkönum.
Takmarkanir
  • Notaðu raunveruleg dæmi um íslensku með skýru samhengi.
  • Aðgreindu málfræðilega rétta þýðingu frá menningarlega réttri þýðingu.
  • Leitaðu að stöðlun, ameríkaníseringu og glötuðum blæbrigðum.
Sannprófunarspurningar
Sannprófunarspurningarnar 3 fylgja með þegar þú afritar. Þú svarar þeim í skrefi 3.

Ábyrgðarskjalið

Ábyrgðarskjalið er lokahlið verkefnisins. Hér sýnir þú að þú getur notað gervigreind án þess að fela þig á bak við hana. Allar fullyrðingar sem lifa áfram í lokaafurð þurfa sannprófun, skýran fyrirvara eða meðvitaða höfnun.

Hannaðu próf sem finnur mörkin þar sem líkanið skilur orðin en missir samhengið. Í ábyrgðarskjalinu nefnir þú hvaða mannlegu samskiptaatriði lifa ekki af vélræna þýðingu.

1. Gervigreindarferill

Skráðu hvaða tól var notað, hvaða kvaðningar (e. prompt) voru prófaðar, hvað breyttist milli útgáfna og hvaða hlutar úttaksins virtust fyrst sannfærandi.

2. Sannprófun

Notaðu að minnsta kosti þrjár óháðar stoðir eftir eðli verkefnisins: frumheimild, opinber gögn, fræðilega heimild, eigin útreikning, líkamlega prófun, sérfræðingsmat eða samanburð við mannlega reynslu.

3. Villur og blindsvæði

Svaraðu þessum spurningum:

  • Hvaða orð eða tónn verður of almennur?
  • Hvar birtist ensk hugsun í íslenskum búningi?
  • Hvaða samhengi getur aðeins manneskja með máltilfinningu leiðrétt?

4. Höfnun

Nefndu minnst tvö atriði sem þú hafnar úr gervigreindarúttakinu. Útskýrðu hvort þau voru röng, ósönnuð, siðferðilega veik, of almenn eða einfaldlega ekki í samræmi við mannlega akkerið þitt.

5. Ábyrgðaryfirlýsing

Ljúktu með stuttri yfirlýsingu í fyrstu persónu: hverju þú tekur ábyrgð á, hvað þú veist ekki enn og hvaða ákvörðun þú myndir ekki framselja til gervigreindar.

Núna er komið að þér. Æfingin er brúin milli skrefs 2 og skrefs 3.

Fara í æfingu

Fyrir kennara, hæfnilína: Undirlagsdómgreind

Þetta er einingin öll: akkeri, uppbrot, ábyrgð. Vinnan sjálf fer fram utan þessarar síðu.

Næsta einingIðkun →