Kennaraleiðbeiningar
Yfirlit
| Þáttur | Útfærsla | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Tími | 2–3 kennslustundir + heimavinna | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Gæðaflokkur | B (æfing) eða C (fullt verkefni með skilum) | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Hópastærð | Einstaklings- eða paraverkefni | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Tól | Gervigreindartól með vefleit; aðgangur að tímaritum/afturköllunarskrám sem skólinn hefur | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| (Tafla til útfyllingar) | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Af hverju þetta þema virkar
Það kennir eina mikilvægustu færni gervigreindarlæsis: að rekja fullyrðingu til uppruna og meta stöðu hennar, í stað þess að treysta öruggu orðalagi. Hentar vísindaforvitnum nemendum og býður upp á raunverulega dýpt fyrir þá sem klára hratt (sjá notendasögu Arons).
Undirbúningur
- Tryggðu aðgang að einu gervigreindartóli með vefleit.
- Sýndu nemendum hvernig á að athuga stöðu heimildar: leita að greininni, athuga hvort hún er afturkölluð (opinber afturköllunarskrá / tímaritið sjálft), og hvort niðurstaðan hefur verið endurtekin. Ef skólinn hefur heimildatól (t.d. Scite) má nota það.
- Ekkert tól krafist sem nemandinn þarf persónulegan aðgang að, ókeypis aðgangur eða opin tól duga.
- Lestu útfyllta dæmið til að sjá væntan gæðastaðal.
Framvinda
- Skref 1 (15 mín, án vélar): nemendur skrifa staðreynd + hversu vissir þeir eru.
- Skref 2 (kennslustund): ICCRA-kvaðningin; rekja til uppruna, fá heimildir með stöðu.
- Skref 3 (kennslustund + heimavinna): sannprófa stöðu hverrar heimildar, dómur.
- Umræða: hverjir fundu ofskynjaða (e. hallucination) heimild? Hver fann staðreynd sem hvíldi á engu?
Algengar gildrur
- Heimild talin sönnun án þess að staða sé könnuð. Afturkölluð grein er enn „til“, en hún styður ekki lengur fullyrðinguna.
- Ofskynjaðar tilvitnanir. Vélar finna upp höfunda, ártöl og DOI sem líta sannfærandi út. Krefstu uppflettingar á hverri heimild.
- Samhljómur talinn samstaða. Margar síður sem endurtaka sömu rannsókn eru ein heimild.
- „Ég veit ekki“ sem mistök. Þvert á móti: að geta ekki staðfest er gild, heiðarleg niðurstaða og á að fá viðurkenningu.
Aðlögun
- Raunvísindi: kafaðu dýpra í eftirmyndunarkrísuna og ritrýni sem ferli.
- Starfsnám: veldu staðreynd úr faginu (t.d. um efni, öryggi eða aðferðir) og rektu hana.
- Styttri útgáfa: ein staðreynd, ein upprunaheimild, staðfest eða hrakin.
Umræðuspurningar
- Hver er munurinn á „margir segja þetta“ og „þetta er sannað“?
- Af hverju getur vél verið svona örugg um eitthvað sem stenst ekki?
- Er heiðarlegra að segja „ég veit það ekki“ en að endurtaka staðreynd af öryggi?