Kennaraleiðbeiningar

Yfirlit

ÞátturÚtfærsla
Tími2–3 kennslustundir + heimavinna
GæðaflokkurB (æfing) eða C (fullt verkefni með skilum)
HópastærðEinstaklingsverkefni; hlustun og umræða í hópum
TólGervigreindartól með vefleit; ókeypis aðgangur dugar
(Tafla til útfyllingar)

Af hverju þetta þema virkar

Tónlist stendur nemandanum nærri og er hlaðin tilfinningum. Það gerir mannlega akkerið sterkt og persónulegt. Þemað hentar sérstaklega vel nemendum sem lifa í streymisheiminum (sjá notendasögu Dags). Hvert skref er stutt og afmarkað, sem hentar nemendum sem eiga erfitt með löng, þétt verkefni.

Undirbúningur

  • Engin sérstök tól umfram eitt gervigreindartól með vefleit.
  • Hægt að byrja kennslustund á því að spila tvö lög (eitt frá ~1995, eitt frá ~2024) og láta nemendur giska á muninn áður en vélin greinir.
  • Lestu útfyllta dæmið til að sjá væntanlegan gæðastaðal.

Framvinda

  1. Skref 1 (15–20 mín, án vélar): nemendur skrifa um sína tónlist. Engin tæki.
  2. Skref 2 (kennslustund): ICCRA-kvaðningin; áhersla á að aðgreina gögn frá túlkun.
  3. Skref 3 (kennslustund + heimavinna): Honest Oracle, „hvað tapast/skapast“, dómur.
  4. Umræða: spiluðu dæmin; hver fann mótdæmi sem braut mynstrið?

Algengar gildrur

  • Skoðun tekin sem gögn. „Lög eru verri núna“ er túlkun, ekki mæling. Krefstu aðgreiningar.
  • Ein hlið. Sumir nemendur sjá aðeins tap. Krefstu beggja dálka í Skrefi 3. Reikniritin gerðu líka nýja sköpun mögulega.
  • Ofskynjaðar (e. hallucination) rannsóknir. Vélar finna upp „Spotify-rannsóknir“ með tölum. Krefstu uppflettingar.
  • Bergmál. Nemandi sem bað vélina bara um að staðfesta fyrirframskoðun fékk bergmál, ekki greiningu.

Aðlögun

  • Skapandi greinar/tónlistarnám: kafaðu dýpra í hljóðblöndun, útsetningu, útgáfutaktík.
  • Bóknám: tengdu við athyglishagkerfið og dópamín-lykkjuna sem hagfræðilegt og sálfræðilegt fyrirbæri.
  • Styttri útgáfa: sleppa samanburði tímabila, einbeita sér að einu lagi og einum króki.

Umræðuspurningar

  1. Hver semur lagið: listamaðurinn eða reikniritið sem verðlaunar ákveðið form?
  2. Er styttra lag verra lag, eða bara annað lag?
  3. Hver er munurinn á að skapa fyrir manneskju og að fínstilla út frá sleppihlutfalli (e. skip rate)?

Aftur í verkefnapakkann