Verkefnapakki 01 · Fullbúinn (útgáfa 1.0) · Tími: 2–3 kennslustundir + heimavinna

Stafræna sagan þín — hver stýrir því hver segir frá þér á netinu?

Yfirlit

Kjarnaspurning

Þú átt þér sögu á netinu hvort sem þú skrifaðir hana eða ekki. Leitarvélar, samfélagsmiðlar, skólar, fjölmiðlar (og nafnar þínir) leggja öll til. Hver stýrir í raun því hver segir frá þér? Og hvað getur þú gert í því?

Þetta verkefni þjálfar nemandann í að rannsaka sitt eigið (eða samþykkts opinbers aðila) stafræna fótspor með gervigreind, en hafna freistingunni að trúa vélinni í blindni, því þegar kemur að mannorði eru mistök vélarinnar ekki bara villur, heldur geta orðið meiðyrði.

Námsmarkmið

Eftir verkefnið getur nemandinn:

  1. kortlagt stafrænt fótspor kerfisbundið frá mörgum hliðum;
  2. flokkað fullyrðingar í þrjú sönnunarþrep eftir styrk (óháð staðfest / sjálf-heimild / óvíst);
  3. greint muninn á samhljómi og óháðri staðfestingu (convergence ≠ corroboration);
  4. bent á hver stýrir frásögninni (hann sjálfur, vettvangar, þriðju aðilar, reiknirit eða nafnar) og hvar gagnafullveldi og stafrænt frelsi er hægt að endurheimta;
  5. tekið ábyrgð á því sem hann birtir og leiðréttir, og því sem hann hafnar.

Aðferðar-tenging (rannsóknaraðferð færð á kennslufræði)

  • Mannlega akkerið = Baseline Audit: nemandinn skrifar hver hann heldur að hann sé á netinu, áður en hann leitar.
  • Vélræna uppbrotið = Sector-greining með ICCRA-kvaðningu og þriggja þrepa sönnunarrammanum.
  • Ábyrgðarskjalið = Honest Oracle: nemandinn ræðst á eigin niðurstöðu, aðgreinir samhljóm frá staðfestingu, og færir ábyrgðina til baka.

Hvar pakkinn situr í Tækniseiglu

Tengist beint einingum 08 (Tækni: velviljaða búrið, gagnafullveldi), 17 (Miðlar: heimildarakning) og 20 (Mannréttindi: kerfisbundinn bjagi). Pakkinn er kjörinn inngangur að hugtökunum gagnafullveldi og stafrænu frelsi.

Skref 1: Mannlega akkerið

Án vélar. Skrifaðu þetta sjálfur, áður en þú leitar að nokkru. Þetta er viðmiðið þitt, myndin sem þú berð svo saman við það sem netið segir. Ef þú leitar fyrst gleypir þú sögu netsins og missir þína eigin. 600–1.000 orð.

Veldu viðfangið

Þú mátt rannsaka sjálfan þig eða samþykktan opinberan aðila (t.d. þekktan listamann, íþróttamann eða stjórnmálamann sem hefur kosið að vera í sviðsljósinu). Þú mátt ekki rannsaka skólafélaga, kennara eða einkaaðila án skýrs samþykkis. Sjá siðareglur í kennaraleiðbeiningum.

Skrifaðu — með eigin orðum

Svaraðu eftirfarandi án þess að fletta neinu upp:

  1. Sjálfsmyndin. Hver heldurðu að þú sért á netinu? Hvaða mynd vildirðu að ókunnug manneskja fengi ef hún gúglaði þig?
  2. Spáin. Hvað heldurðu að komi raunverulega upp ef einhver leitar að þér núna: á leitarvél, á samfélagsmiðlum, í myndaleit? Giskaðu hreinskilnislega.
  3. Höfundarnir. Hver hefur skrifað þessa sögu? Listaðu þá sem leggja til: þig sjálfan, vettvanga (TikTok, Instagram, Snapchat…), skóla/félög, fjölmiðla, vinir og fjölskylda, og mögulegir nafnar sem deila nafni þínu.
  4. Yfirráðin. Hverju ræður þú yfir og hverju ekki? Hvað gætirðu fjarlægt í dag? Hvað er fast hjá öðrum? Hvað ákveður reiknirit fyrir þína hönd (hvað birtist efst, hvað hverfur)?
  5. Tilfinningin. Er eitthvað þarna úti sem þú vildir að væri ekki? Eða sem þú vildir að fleiri sæju? Af hverju?

Eitt heiðarlegt mat

Ljúktu við setninguna: „Ef ég væri atvinnurekandi, þjálfari eða ókunnug manneskja sem gúglaði mig, þá myndi fyrsta hugsun mín um mig vera …“

Geymdu þetta óbreytt. Í Skrefi 3 berðu það saman við það sem vélin og netið sögðu, og þá sérðu hvar þín eigin mynd og stafræna sagan stangast á.

Skref 2: Vélræna uppbrotið

Nú notarðu gervigreind sem magnara, ekki véfrétt. Þú stýrir, vélin leitar, tekur saman og víkkar. Markmiðið er að safna öllu sem til er, en flokka það strax eftir því hversu traust það er.

A. Þú ert yfirmaðurinn (þrjár ákvarðanir)

  1. Markmiðið: „Ég ætla að kortleggja stafrænt fótspor [mitt / X] og greina hver stýrir frásögninni.“
  2. Kvaðningin (e. prompt): þú hannar hana (sniðmát hér að neðan).
  3. GO: þú samþykkir keyrsluna og berð ábyrgð á niðurstöðunni.

B. Leitaðu frá mörgum hliðum

Eitt leitarorð sýnir eina hlið. Keyrðu greininguna frá að minnsta kosti fjórum hliðum og haltu þeim aðskildum:

  • Leitarvél: hvað kemur efst? Hver á efstu niðurstöðurnar?
  • Samfélagsmiðlar: opnar prófílar, myndir, ummerki annarra um þig.
  • Fræði/starf/skóli: opinberar síður, skrár, fréttir.
  • Myndaleit: hvaða myndir tengjast nafninu?
  • Nafnar: hverjir aðrir deila nafninu þínu, og er ruglað saman?

C. Þriggja þrepa sönnunarramminn (kjarninn)

Ekki spyrja vélina „hver er X?“ og taka svarið. Krefstu þess að hún flokki hverja fullyrðingu í eitt af þremur sönnunarþrepum:

SönnunarþrepSkilgreining
Sönnunarþrep 1: Óháð staðfestHvílir á þriðja aðila: fjölmiðli, opinberri stofnun, opinberri skrá, hlekk sem virkar. Heimildin er nefnd.
Sönnunarþrep 2: Sjálf-heimildHvílir aðeins á viðkomandi sjálfum (eigin prófíll/síða) eða öðrum sem endurtaka hann. Getur verið satt, en enginn óháður staðfestir.
Sönnunarþrep 3: Óvíst / nafnaruglingurMótsögn, læst/ólesin heimild, eða gæti átt við nafna.
(Tafla til útfyllingar)

D. ICCRA-kvaðningin (yfirfarið sniðmát)

Notaðu þessa uppbyggingu: hún er hönnuð til að þvinga fram flokkun og andóf gegn smjaðri (e. sycophancy):

INTENT: Kortleggðu stafrænt fótspor "[fullt nafn / opinber aðili]" og greindu hver
  stýrir frásögninni. Ekki draga ályktanir um persónuna sjálfa.

CONTEXT: Þetta er [ég · samþykktur opinber aðili]. Þekkt atriði: [skóli,
  staður, áhugamál, það sem þú veist nú þegar]. Mögulegir nafnar: [ef einhverjir].

CONSTRAINTS:
  - Flokkaðu HVERJA fullyrðingu í sönnunarþrep 1 / 2 / 3 og nefndu heimild fyrir þrep 1.
  - Aðgreindu samhljóm frá staðfestingu: ef margar síður segja það sama en sækja í
    sömu upprunaheimild, telst það EIN heimild, ekki margar.
  - Tilgreindu sérstaklega það sem gæti átt við nafna.
  - ANTISYCOPHANCY: Skráðu í sérkafla allt sem þú ert ÓVISS um eða sem gæti verið rangt.
    Ekki sleppa óþægilegum atriðum.

AUTHORITY: Þú mátt leita víða og dýpka á eigin spýtur, en ekki finna upp heimildir. Ef þú
  finnur ekki staðfestingu, segðu það berum orðum.

REPORTING: Skilaðu (1) töflu: fullyrðing | sönnunarþrep | heimild | hver birti hana, og
  (2) stuttum lista yfir "hvað ég er óviss um".

E. Úttak þessa skrefs

Hrá en flokkuð tafla yfir allt sem fannst, plús „óviss um“-listinn. Ekki túlka enn. Það bíður Skrefs 3. Mundu: á þessu stigi er vélin búin að safna sögunni. Eftir er að dæma hana.

Skref 3: Ábyrgðarskjalið

Lokahliðið. Hér sýnirðu að þú getur notað gervigreind án þess að fela þig á bak við hana. Þú ræðst á eigin niðurstöðu (það er Honest Oracle) og færir ábyrgðina til baka til manneskju.

1. Berðu saman við mannlega akkerið

Taktu Skref 1 fram. Hvar stangast myndin sem þú hafðir af þér og sagan sem netið segir? Hvað kom á óvart? Hvað vantaði alveg?

2. Honest Oracle — ráðstu á niðurstöðuna

Vertu þinn eigin harðasti gagnrýnandi. Svaraðu:

  • Convergence ≠ corroboration: Hvaða „staðreyndir“ sem litu út fyrir að vera margstaðfestar reyndust í raun vera sóttar í eina heimild (oftast þinn eigin prófíl)? Endurmerktu þær sem sönnunarþrep 2.
  • Ofskynjun (e. hallucination): Fann vélin upp eitthvað (verðlaun, viðburð, vinnu, tengsl) sem þú getur ekki staðfest? Mannorð þolir ekki ofskynjun: röng fullyrðing um manneskju getur orðið meiðyrði.
  • Nafnaruglingur: Blandaði vélin þér saman við nafna? Hvað var ranglega eignað þér?

3. Hver stýrir frásögninni?

Fylltu út fyrir hvert mikilvægt atriði: hver birti það og hver ræður yfir því:

AtriðiHver birtiHver ræður (þú / vettvangur / þriðji aðili / reiknirit)Get ég breytt því?
(Tafla til útfyllingar)

Dragðu ályktun: stýrir þú frásögninni um þig, eða gera vettvangar, reiknirit og aðrir það fyrir þig?

4. Gagnafullveldi og stafrænt frelsi — aðgerðir

Skráðu raunhæfar aðgerðir, aðgreindu tvennt:

  • Gagnafullveldi (hvar gögnin þín eru vistuð og hver ræður): hvað geturðu fjarlægt, gert að einkamáli eða hýst hjá þér, og hverju geturðu beðið um að verði eytt?
  • Stafrænt frelsi (val á verkfærum og hegðun): hvaða vettvanga velurðu, hvað hættirðu að fæða, hvaða sögu byrjarðu að skrifa upp á eigin spýtur (t.d. eigin síða sem þú átt)?

5. Höfnun

Nefndu minnst tvö atriði úr gervigreindarúttakinu sem þú hafnar. Útskýrðu hvort þau voru röng, ósönnuð, byggð á nafnarugli eða einfaldlega ekki í samræmi við raunveruleikann.

6. Ábyrgðaryfirlýsing

Ljúktu í fyrstu persónu: hverju þú tekur ábyrgð á sem réttu, hvað þú veist ekki enn, og hvaða eina skref þú tekur til að endurheimta stjórn á sögunni um þig.

Fylgiskjöl