Skref 2, Myndbreytingin

Í Skrefi 1 vaknaðirðu og sást leikinn. Hér stígurðu skrefi lengra og skoðar hvað er raunverulega að gerast. Þetta er ekki galdur og ekki heimsendir. Þetta er myndbreyting, og þú ert ekki áhorfandi að henni, þú ert í hópi þeirra sem móta hana.


1. Gervigreind er ekki galdrakassi

Byrjum á að taka niður tvær ranghugmyndir.

Gervigreind er ekki einhver kassi fullur af undrum. Hún er ekki meðvituð vera sem hugsar eða skilur eða þráir eitthvað. ChatGPT og systkini þess eru vélar sem gera eitt: þær sjálfvirknivæða vinnu. Ekkert dularfyllra en það.

Það nýja við þessa vél er hvaða vinnu hún sjálfvirknivæðir. Fram að þessu réðu vélar við líkamlega vinnu og einfaldar endurtekningar. Núna ræður vélin við þekkingarvinnu: að sækja þekkingu og að framleiða hana. Að leita, draga saman, orða, þýða, umskrifa, teikna upp. Það sem áður krafðist manneskju með penna eða lyklaborð er nú að hluta komið á færiband.

Þess vegna er réttast að hugsa um risamállíkan sem upplýsingaverksmiðju: tölfræðivél sem hefur lesið ógrynni af texta og lærir að spá fyrir um næsta orð. Hún skilur ekki það sem hún segir. Hún reiknar líklegasta framhaldið. Þess vegna, og þetta er lykilatriði, er hún langt frá því að vera fullkomin. Hún fer með fleipur af fullkomnu öryggi, skáldar heimildir sem eru ekki til, og ruglar staðreyndum. Verksmiðja sem framleiðir bæði gull og gervigull, og segir þér aldrei hvort er hvað. Það er þitt verk að vigta. Þess vegna endar hvert skref Tækniseiglu á ábyrgðarskjali.


2. Svona virkar sjálfvirknivæðing: flugtak og svo jafnvægi

Fyrstu viðbrögð flestra við þessari vél eru „vá, þetta gerir allt svo miklu auðveldara!“ Það er satt, í bili. En það er ekki þannig sem sjálfvirknivæðing endar.

Skoðaðu söguna. Rafmagnið, bíllinn, síminn, internetið. Hvert og eitt fylgdi sama mynstri: fyrst kemur flugtak þar sem allt er nýtt, spennandi, óreiðukennt og ýkt, og svo, hægt og rólega, jafnvægi þar sem tæknin verður hluti af hversdeginum og samfélagið setur nýjar reglur, skapar ný störf og mótar nýjar venjur í kringum hana. Rafmagnið var einu sinni undur á sýningum. Núna er það innstunga í veggnum sem enginn tekur eftir.

Það sem við upplifum núna er myndbreyting, ekki varanlegt kraftaverk. Í flugtakinu finnst manni eins og allt sé að breytast í einu, af því það er satt akkúrat núna. En það mun jafnast út. Spurningin er ekki hvort, heldur hvernig, og hverjir móta nýja jafnvægið.


3. Flugtakið er tækifærið

Hér er ástæðan fyrir því að þetta skiptir þig máli einmitt núna.

Í flugtaki er meira svigrúm en í jafnvægi. Reglurnar eru ekki fullmótaðar, dyrnar eru opnari, og sá sem kann að nota verkfærin getur farið langt á stuttum tíma. Þetta er glugginn.

Ef við notum flugtakið til að vopna okkur dómgreind og vilja til að gera gott, þá opnast eitthvað sem var áður lokað. Einstaklingur, lítið teymi, jafnvel heil þjóð getur núna tekist á við áskoranir sem voru langt, langt utan seilingar fyrir örfáum árum. Ekki af því vélin er snjöll, heldur af því að hún margfaldar þá sem eru færir** (mundu magnarann úr Skrefi 1). Verkfærið sjálft er hlutlaust. Það sem þú leggur inn ræður öllu.

Þetta er ekki loforð um að allt verði auðvelt. Það er boð um að taka þátt í að móta það sem kemur næst.


4. Iðkun er vald

Hér á undan sástu að vélin margfaldar þá sem eru færir. En það vekur spurningu sem er auðvelt að sleppa: hvernig verðurðu fær?

Þú verður fær með iðkun. Það er orðið yfir að leggja stund á eitthvað aftur og aftur þangað til það sest í hendurnar, líkamann og hugsunina: íþróttaiðkun, listiðkun, að æfa sig. Færni er ekki eitthvað sem þú lest þig til um. Hún byggist upp með endurtekningunni, með fyrstu tilrauninni sem mistekst og næstu sem tekst betur.

Hér er gildran. Þegar vélin getur unnið þekkingarvinnuna fyrir þig, getur hún líka unnið æfinguna fyrir þig, og það er allt annað mál. Ef þú lætur hana gera fyrstu tilraunina, fyrstu drögin og fyrstu röksemdina, alltaf, þá stofnarðu til iðkunarskuldar: þú tekur lán í þægindum núna, og veðið er færnin sem þú hefðir annars byggt upp.

Eins og öll lán ber hún vexti. Hver flýtileið gerir þá næstu auðveldari, svo skuldin stækkar hljóðlaust án þess að nein ein ákvörðun virðist dýr. Þú borgar hana ekki til baka með því að lesa um hana, heldur með því að fara til baka og taka æfinguna sem þú slepptir, og þá kostar hún meira en hún hefði gert í fyrstu. Fari hún nógu hátt tapast sjálf getan til að læra hlutinn.

Systurskuldin, uppsafnaði kostnaðurinn af því að afhenda vélinni hugsunina sjálfa, kallast vitræn skuld. Ábyrgðarskjalið í lok hvers skrefs er til að halda henni niðri: þú spyrð alltaf hvaða ákvörðun þú myndir ekki framselja.

Þess vegna er iðkun vald. Þú verður ekki góður í neinu með því að láta vél gera það fyrir þig, ekki frekar en þú verður sterkur með því að láta einhvern annan lyfta lóðunum fyrir þig. Og þess vegna byrjar hvert einasta skref Tækniseiglu á þínu eigin: þú leggur fram þitt, lætur vélina magna það, og berð svo ábyrgð. Þannig heldurðu æfingunni þinni, og verður sá sem magnarinn margfaldar.


5. Þú stendur á landamærum

Vélin flaug af stað, en stofnanirnar okkar hafa ekki enn náð henni. Skólinn, námsmatið, vinnumarkaðurinn, prófgráðurnar: margt af þessu var byggt fyrir gamla heiminn og á eftir að breytast. Þetta kallast aðgangslost: þegar aðgangur að öllu breytist hraðar en fólk og kerfi ná að melta.

En hér er lykilatriðið, og það er ekki afsökun heldur boð. Þetta er ekki búr, þetta er ónumið land. Þú stendur þar sem engin kynslóð á undan þér hefur staðið, með verkfæri sem enginn átti fyrir tíu árum. Kortið er ekki tilbúið, því það er þitt að teikna það. Fyrri kynslóðir gátu dreymt stórt, en þær höfðu ekki magnarann í höndunum. Þú hefur hann.


6. Þokan þar sem ábyrgðin hverfur

Þegar kerfin ná ekki vélinni gerist dálítið sérkennilegt. Ábyrgðin gufar ekki upp, hún dreifist, þangað til enginn ber hana en allir hafa afsökun.

Prófum. Einhver býr til færslu um þig. Hún er ekki sönn, hún er meiðandi, og hún fer víða. Þú vilt fá hana fjarlægða. Þú ferð af stað:

Þú spyrðÞú færð
Þann sem skrifaði„Þetta var brandari.“
Samfélagsmiðilinn„Þetta brýtur ekki gegn okkar reglum.“
Þjónustuverið„Sendu inn form.“ Formið sendir þér sjálfvirkt svar.
Fyrirtækið sjálftSkráð í öðru landi. Hýsingin í því þriðja.
Lögregluna heima„Þetta er erlent fyrirtæki, þetta er flókið.“
Lögfræðing„Já, þú átt sennilega rétt. Það kostar og það tekur ár.“
(Tafla til útfyllingar)

Enginn þeirra laug að þér. Hver einasti þeirra sagði satt um sinn hluta. Og samt stendur færslan enn.

Þetta heitir ábyrgðarþoka: ábyrgð dreifist yfir svo mörg kerfi, lögsögur og skilmála að skaðinn hefur engar afleiðingar fyrir neinn sem tók ákvörðun. Þokan er ekki samsæri. Það er miklu óþægilegra en það. Þokan verður til af sjálfri sér um leið og nógu margir bera örlítinn hluta og enginn ber heildina.

Þokan er ekki bara á netinu

Þú þekkir hana líka af þurru landi. Það vantar öryggisbúnað í kjallarann. Hljómsveitin fær ekki að æfa í salnum. Enginn veit hver má taka ákvörðunina:

„Ég ræð þessu ekki.“ → „Talaðu við húsvörðinn.“ → „Ég sé bara um húsið.“ → „Þetta er hjá stjórninni.“ → „Þetta var ekki á dagskrá.“ → „Ég ræð þessu ekki.“

Taktu eftir: hringurinn lokast. Þú ert kominn á byrjunarreit og enginn gerði neitt rangt. Þetta er hversdagsleg ábyrgðarþoka, og hún þrífst þar sem **enginn hefur skilgreint hlutverk til að athafna sig í.

Rithöfundurinn Franz Kafka skrifaði heilu bækurnar um þetta löngu fyrir daga internetsins. Í sögum hans er hetjan alltaf að reyna að ná tali af þeim sem ræður, og kemst aldrei lengra en að næsta skrifborði. Þess vegna segjum við enn í dag að eitthvað sé kafkaískt. Kafka þurfti ekki gervigreind til að lýsa þessu. Hann þurfti bara skrifstofu.

Af hverju vélin þykknar þokuna

Gervigreind bætir tveimur nýjum lögum við. Í fyrsta lagi er hægt að framleiða efni hraðar en nokkurt kerfi ræður við að skoða. Í öðru lagi kemur ný og einstaklega þægileg afsökun: „kerfið lagði þetta til.“

Sá sem tekur við úttaki vélarinnar skrifar undir og ber ábyrgð á því sem hann hefur ekki þekkingu til að meta. Hann er ábyrgðarsvampur: hann drekkur í sig ábyrgðina og kreistist svo þegar illa fer. Þetta er ekki starf sem neinn sækir um, það er staða sem fólk rennur inn í án þess að taka eftir því.

Hvernig þú gengur út úr þoku

Þú getur ekki rifist við þoku. Það er einmitt málið með hana. En þú getur gert þrennt, og það virkar bæði á netinu og í félagsheimilinu:

  1. Spurðu hver skrifar undir. Ekki hvaða deild, ekki hvaða kerfi. Hvaða manneskja. Þokan þolir ekki nafn.
  2. Skrifaðu hjá þér hvað var sagt, hvenær og af hverjum. Þoka lifir á því að enginn muni hringinn. Þegar hringurinn er skrifaður niður sést hann.
  3. Finndu þann sem getur sagt já. Sá sem getur aðeins sagt nei er sjaldnast sá sem ræður.

Þetta er nákvæmlega það sem þú æfir í Ábyrgðarskjalinu, þriðja skrefinu í hverri einingu. Þar skrifar þú undir með eigin nafni: þetta stenst, þetta stenst ekki, þessu hafna ég, og ég ber ábyrgð á því sem eftir stendur. Það er andstæðan við þoku, og það gerir þig að kerfisgreinanda: manneskju sem sér hvar í kerfinu ákvörðunin var tekin, hver tók hana og á hvaða forsendum. Kerfisgreinandinn er andstæðan við ábyrgðarsvampinn — og hann er það sem þú ert að æfa þig í að verða, í hverri einustu einingu.


7. Áttavitinn og völdin þín

Ef gamla kortið gildir ekki lengur, hvernig veistu þá í hvaða átt á að fara? Þú þarft áttavita sem virkar sama hversu mikið kortið breytist. Þessi áttaviti er til, og hann heitir lífsgildi (á fræðimáli lífsgildis-verufræði, kennd við heimspekinginn John McMurtry).

Hugmyndin er einfaldari en nafnið. Mælikvarðinn á hvort eitthvað sé gott er ekki hve snjallt það er eða hve mikinn pening það býr til, heldur einn: eykur það lífið eða dregur það úr því? McMurtry lýsir tveimur andstæðum stefnum sem allt rennur eftir:

  • Lífsrásin: líf → verkfæri lífsins → meira líf. Allt sem eykur raunverulega getu manneskju og samfélags: heilsu, þekkingu, færni, tengsl, sjálfræði. Þú gefur inn og lífið stækkar.
  • Peningarásin: peningur → vara → meiri peningur. Allt sem er hannað til að soga verðmæti út: athygli þína, gögnin þín, tíma þinn, og breyta þeim í hagnað fyrir aðra. Þú gefur inn og einhver annar stækkar.

Mundu velviljaða búrið úr Skrefi 1. Það er peningarásin klædd í búning umhyggju: þægileg, hjálpleg, og hönnuð til að soga. Sama vél, sama mállíkan, getur þjónað hvorri rásinni sem er. Það fer eftir því hver heldur á hnífnum og í hvaða átt hann beinir honum.

Þetta er kjarninn í einni setningu. Notaðu magnarann til að ýta verkfærinu í átt að lífsrásinni. Beittu dómgreind, taktu ábyrgð, og notaðu getuna sem þú margfaldar til að stækka lífið, þitt eigið og annarra.

Og hér er það sem við, sem búum þetta til, verðum að viðurkenna: við vitum ekki hvað þú getur ímyndað þér. Við þekkjum ekki hugmyndirnar sem kvikna hjá þér, verkefnin sem aðeins þú sérð að eru þess virði að leysa, eða hlutina sem þú getur búið til sem okkur detta ekki einu sinni í hug. Það er ekki okkar að vita það. Það er þitt að uppgötva það.

Þess vegna er þetta námskeið ekki prédikun um að passa sig. Það er þjálfun. Leyfðu forvitninni að ráða. Þorðu að fara ótroðnar slóðir. Finndu hvar áhuginn þinn liggur og notaðu tímann sem menntunin gefur þér til að æfa þig og ná virkilega góðum tökum á því. Í fyrsta sinn í sögunni getur ein manneskja, eitt lítið teymi, jafnvel heil þjóð tekist á við áskoranir sem áður voru langt, langt utan seilingar. Þú hefur völdin. Þetta er þín kynslóð, þitt frelsi, þinn penni. Farðu lengra en við gátum ímyndað okkur.


Mannlega akkerið þitt (verkefni án vélar)

Áður en þú ferð í einingarnar skaltu skrifa stutta hugleiðingu, með eigin orðum, án gervigreindar:

  1. Nefndu eina áskorun (í þínu lífi, samfélagi eða heiminum) sem þér fannst of stór fyrir eina manneskju. Ef þú hefðir magnara sem margfaldar það sem þú kannt, hvernig myndirðu byrja að vinna með hann?
  2. Taktu eitt app eða eina þjónustu sem þú notar daglega. Þjónar hún lífsrásinni eða peningarásinni? Hvernig sérðu það?
  3. Hvar heldurðu að áhuginn þinn liggi, og hvernig gæti magnarinn hjálpað þér að ná virkilega góðum tökum á því?

Geymdu hugleiðinguna. Í lok námskeiðsins lest þú hana aftur og sérð hvort áttavitinn hefur skerpst.